|
Miðlun ehf er samskiptastofa - við vinnum með fyrirtækjum sem velja að útvista sölu eða þjónustu. Þjónustustofa Miðlunar annast samskipti sem fela í sér símsvörun eða vöktun/svörun á netspjalli, tölvupósti eða samfélagsmiðlum. Við rekum móttökur og símaver fyrir hönd viðskiptavina okkar. Sölustofa Miðlunar annast samskipti sem fela í sér jákvæð tengsl við fyrirtæki og einstaklinga. Við seljum vörur og þjónustu fyrir hönd viðskiptavina okkar, bókum fundi eða eigum samtal við viðskiptavini þeirra.
Lausnirnar okkar eru einfaldar og árangursríkar, unnar í nánu samstarf við viðskiptavinina. Við erum sérfræðingar í sölu og þjónustu. Við stöndum við loforð okkar og leggjum áherslu á góð og fagleg vinnubrögð. |
|